Fara í meginmál

Starfssvið

Skaðabótaréttur / slysamál

Umhverfismynd fyrir starfssvið: Skaðabótaréttur / slysamál

Slys og tjónsatvik geta haft langvarandi áhrif á heilsu og fjárhag. Mörkin sinnir hagsmunagæslu fyrir tjónþola og ráðgjöf til tryggingafélaga og fyrirtækja sem standa frammi fyrir bótakröfum.

Sérhæfð þjónusta og reynsla

Ráðgjöfin getur meðal annars varðað umferðarslys, vinnuslys, skólaslys, slys á opinberum stöðum og tjón vegna mistaka í faglegri þjónustu. Mörkin metur réttarstöðu, sönnunarstöðu og bótaforsendur frá fyrstu stigum.

Mörkin sinnir samskiptum við tryggingafélög, örorkumötum, samningagerð um uppgjör og málflutningi þegar reynir á matsgerðir, ábyrgð eða fjárhæð bóta fyrir dómi.

Á sviði atvinnurekstrar er sinnt ráðgjöf um skaðabótaábyrgð fyrirtækja, samspil við vátryggingar og innra eftirlit sem dregur úr áhættu, ásamt ágreiningi við tryggingafélög.

Markmiðið er að tjónþolar fái sanngjarnar bætur og að ábyrgðaraðilar hafi raunhæfa yfirsýn yfir umfang og réttmæti krafna sem á þá eru gerðar.

Viðfangsefni geta meðal annars varðað

  • Umferðar- og vinnuslys
  • Örorkumat og bótauppgjör
  • Samskipti við tryggingafélög
  • Ágreiningur um matsgerðir
  • Málflutningur fyrir dómi