Fara í meginmál

Starfssvið

Fasteigna- og leiguréttur

Umhverfismynd fyrir starfssvið: Fasteigna- og leiguréttur

Fasteigna- og leiguréttur kemur við sögu í flestum stærri viðskiptum og oft á viðkvæmum tímamótum. Mörkin sinnir ráðgjöf við kaup, sölu, leigu og umsjón fasteigna fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Sérhæfð þjónusta og reynsla

Ráðgjöfin getur meðal annars varðað kaupsamninga, kauptilboð, eignayfirlit, lóðamál, sameignir, húsfélög og umsýslu vegna byggingar- og þróunarverkefna.

Á sviði leiguréttar er sinnt gerð og endurskoðun atvinnu- og íbúðarleigusamninga, túlkun leigusamninga, mati á uppsögn og ágreiningi um vanefndir, leiguverð eða ástand eignar.

Mörkin annast einnig hagsmunagæslu fyrir leigjendur og leigusala, byggingaverktaka, fasteignafélög og fjárfesta sem koma að uppbyggingu eða endurskipulagningu fasteigna.

Markmiðið er að tryggja að samningar séu skýrir og að viðskiptavinir hafi nauðsynlega yfirsýn yfir réttindi sín og skyldur, áður en til skuldbindingar kemur eða ágreiningur fer af stað.

Viðfangsefni geta meðal annars varðað

  • Kaupsamningar og kauptilboð
  • Atvinnu- og íbúðarleigusamningar
  • Þróunar- og byggingarverkefni
  • Sameignir og húsfélög
  • Ágreiningur um fasteignir og leigu