Um okkur
Mörkin lögmannsstofa byggir á áratuga reynslu af lögmannsstörfum og lögfræðilegri ráðgjöf fyrir fyrirtæki, opinberar stofnanir og einstaklinga.
Við sameinum fjölþætta reynslu, fagleg vinnubrögð og víðtæka sérþekkingu til að veita skýra og trausta lögfræðiþjónustu.

Traust lögfræðiþjónusta í meira en hálfa öld.
Mörkin lögmannsstofa var stofnuð árið 1975 af Gesti Jónssyni. Frá þeim tíma hefur stofan þróast í breiða og öfluga lögmannsstofu sem sinnir verkefnum á fjölmörgum sviðum lögfræðinnar.
Stofan þjónustar innlend sem erlend fyrirtæki, stór og smá, opinberar stofnanir og einstaklinga. Verkefnin eru ólík að umfangi og eðli en nálgunin er ávallt sú sama: vönduð greining, skýr ráðgjöf og fagleg framkvæmd.
Eigendur og löglærðir fulltrúar stofunnar hafa mjög fjölþætta reynslu af lögmannsstörfum og lögfræðilegri ráðgjöf og veita viðskiptamönnum hverskyns lögfræði- og lögmannsþjónustu sem þeir kunna að þurfa á að halda.
Eigendur stofunnar
Mörkin er í dag í eigu tíu lögmanna sem hafa komið inn í eigendahópinn á ólíkum tímum og mótað stofuna með fjölbreyttri reynslu.
Fólkið á bak við stofuna
Á stofunni starfa eigendur, löglærðir fulltrúar, lögfræðilegir ráðgjafar og öflugt starfsfólk sem styður við daglegan rekstur og þjónustu við viðskiptavini.
Löglærðir fulltrúar
Lögfræðilegir ráðgjafar
Rekstur og stoðþjónusta
Þjónusta við fjölbreyttan hóp viðskiptavina.
- 01
Fyrirtæki
Innlend og erlend fyrirtæki, stór og smá.
- 02
Opinberar stofnanir
Ráðgjöf og lögmannsþjónusta fyrir opinbera aðila.
- 03
Einstaklingar
Skýr og fagleg ráðgjöf þar sem hagsmunir viðskiptavina eru í forgrunni.
- 04
Lögfræðileg ráðgjöf
Fjölþætt reynsla af lögfræðilegri ráðgjöf og lögmannsstörfum.
- 05
Lögmannsþjónusta
Aðstoð við þau lögfræðilegu úrlausnarefni sem viðskiptavinir kunna að þurfa á að halda.
- 06
Alþjóðleg tengsl
Aðgangur að lögmannsþjónustu um heim allan í gegnum SCG Legal.
Viðurkenningar og alþjóðlegt samstarf
Mörkin lögmannsstofa á aðild að SCG Legal, alþjóðlegum samtökum lögmannsstofa, og getur þannig tryggt viðskiptavinum sínum aðgang að framúrskarandi lögmannsþjónustu um heim allan.
- SCG Legal

- Chambers Europe Ranked

- The Legal 500

- Framúrskarandi fyrirtæki 2025

