Starfssvið
Erfðaréttur

Erfðaréttur snýr að viðkvæmum og persónulegum málum sem geta haft langvarandi áhrif á fjölskyldur og fjárhag þeirra. Mörkin veitir yfirvegaða ráðgjöf um erfðagerninga, skipti dánarbúa og ágreining sem getur risið milli erfingja.
Sérhæfð þjónusta og reynsla

Ráðgjöfin getur meðal annars varðað gerð erfðaskráa, kaupmála, fyrirframgreiddan arf, lögerfðir og samspil við skattalega meðferð eigna. Mörkin leggur áherslu á skýra framsetningu sem dregur úr líkum á ágreiningi síðar meir.
Þegar dánarbúsmeðferð er hafin getur Mörkin sinnt hagsmunagæslu fyrir erfingja, hvort sem um er að ræða einkaskipti, opinber skipti eða þrotabússkipti. Áhersla er lögð á yfirsýn og að rétt verklag sé viðhaft frá upphafi.
Mörkin sinnir einnig ágreiningsmálum sem rísa við skipti dánarbúa, þar á meðal um lögmæti erfðaskráa, fyrirfram greiddan arf og kröfur á hendur búi.
Markmiðið er að viðskiptavinir nálgist þessi mál með skýra yfirsýn um réttarstöðu sína og raunhæfar leiðir til lausnar, hvort sem ferlið krefst samninga eða dómstóla.
Viðfangsefni geta meðal annars varðað
- Erfðaskrár og kaupmálar
- Skipti dánarbúa
- Hagsmunagæsla fyrir erfingja
- Ágreiningur um erfðir
- Skattaleg sjónarmið


