Fara í meginmál

Starfssvið

Skattaréttur

Umhverfismynd fyrir starfssvið: Skattaréttur

Skattaréttur snertir flest viðskipti, hvort sem um er að ræða stór fjárfestingarverkefni eða daglegan rekstur. Mörkin veitir fyrirtækjum og einstaklingum ráðgjöf um beitingu skattalaga og samspil við skattyfirvöld.

Sérhæfð þjónusta og reynsla

Ráðgjöfin getur meðal annars varðað tekjuskatt fyrirtækja og einstaklinga, virðisaukaskatt, fjármagnstekjuskatt, samspil við erlendar skattareglur og milliverðlagningu innan samstæða.

Mörkin sinnir kærum og málflutningi fyrir yfirskattanefnd, héraðsdómi og Landsrétti, þar sem reynir á túlkun skattalaga, álagningu, dráttarvexti og endurákvörðun.

Áhersla er lögð á að ráðgjöfin sé hagnýt — að unnt sé að taka ákvarðanir um skipulag rekstrar, fjárfestingar eða eignarhald með skýra yfirsýn yfir skattalegar afleiðingar.

Markmiðið er að viðskiptavinir geti tekið ákvarðanir með skýra mynd af skattaumhverfinu og að ágreiningi við skattyfirvöld sé komið í farsælan farveg eins fljótt og kostur er.

Viðfangsefni geta meðal annars varðað

  • Skattaleg ráðgjöf um fjárfestingar
  • Samskipti við skattyfirvöld
  • Kærur til yfirskattanefndar
  • Milliverðlagning
  • Málflutningur fyrir dómi