Fara í meginmál

Starfssvið

Efnahags- og fjármunabrot

Umhverfismynd fyrir starfssvið: Efnahags- og fjármunabrot

Efnahags- og fjármunabrot snerta jafnt fyrirtæki, stjórnendur og einstaklinga. Mörkin sinnir vörn í sakamálum, ráðgjöf við rannsókn og málflutningi fyrir dómi þegar slík mál koma upp innan atvinnulífs eða einkareksturs.

Sérhæfð þjónusta og reynsla

Ráðgjöfin getur meðal annars varðað skattalagabrot, bókhaldsbrot, umboðssvik, mútubrot, peningaþvætti og brot á reglum um verðbréfaviðskipti. Mörkin sinnir bæði vörn fyrir sakborninga og ráðgjöf til fyrirtækja sem hafa orðið fyrir tjóni.

Áhersla er lögð á að greina réttarstöðu strax á fyrstu stigum, hvort sem rannsókn er í höndum héraðssaksóknara, skattrannsóknarstjóra eða annarra eftirlitsstofnana. Vandaður undirbúningur skiptir miklu máli fyrir framvindu málsins.

Mörkin annast einnig ráðgjöf um innra eftirlit, regluvörslu og fyrirbyggjandi aðgerðir, þannig að fyrirtæki geti dregið úr áhættu og brugðist rétt við ábendingum eða innri uppgötvunum.

Markmiðið er að tryggja viðskiptavinum skýra og hagnýta ráðgjöf sem byggir á reynslu af málflutningi í flóknum efnahagsbrotamálum, jafnt á rannsóknarstigi sem fyrir dómi.

Viðfangsefni geta meðal annars varðað

  • Vörn í sakamálum
  • Ráðgjöf á rannsóknarstigi
  • Innra eftirlit og regluvarsla
  • Brot á verðbréfa- og skattalöggjöf
  • Málflutningur fyrir dómi