Fara í meginmál

Starfssvið

Málflutningur, fyrir almennum dómstólum og gerðardómstólum

Umhverfismynd fyrir starfssvið: Málflutningur, fyrir almennum dómstólum og gerðardómstólum

Málflutningur er kjarni starfsemi Mörkinnar og þvert á réttarsvið sinnir stofan málum fyrir héraðsdómi, Landsrétti, Hæstarétti og gerðardómstólum. Áhersla er lögð á vandaðan undirbúning, skýra framsetningu og þrautseigju í málflutningi.

Sérhæfð þjónusta og reynsla

Mörkin sinnir málflutningi í einkamálum og opinberum málum, þar á meðal viðamiklum efnahags- og fjármunabrotamálum, ágreiningi um samninga, skaðabótamálum, stjórnsýslukærum og málum sem snerta hagsmuni fyrirtækja.

Áhersla er lögð á að málin séu undirbúin frá fyrstu stigum, þar sem greining á sönnunarstöðu og málsástæðum mótar skýra stefnu áður en stefna er gefin út eða svarað.

Á sviði gerðardómsmála sinnir Mörkin bæði málflutningi og setu sem gerðarmenn, og hefur reynslu af gerðardómsmálum sem fara fram bæði eftir innlendum og alþjóðlegum reglum.

Markmiðið er að ráðgjöfin og málflutningurinn nýtist viðskiptavinum sem öflugt tæki til að ná fram réttindum sínum, hvort sem leiðin liggur til samkomulags, sátt eða dóms.

Viðfangsefni geta meðal annars varðað

  • Einkamál fyrir almennum dómstólum
  • Sakamál og vörn í refsimálum
  • Stjórnsýslukærur og dómsmál
  • Gerðardómsmál
  • Áfrýjun til Landsréttar og Hæstaréttar