Starfssvið
Persónuvernd

Persónuvernd snýst um traust — að unnið sé með persónuupplýsingar af kostgæfni og í samræmi við reglur. Mörkin veitir fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum ráðgjöf um persónuverndarlöggjöfina og hagnýta beitingu hennar.
Sérhæfð þjónusta og reynsla

Ráðgjöfin getur meðal annars varðað innleiðingu persónuverndarlaga, mat á áhrifum vinnslu, vinnslusamninga við þjónustuaðila, viðbrögð við öryggisbrestum og samskipti við Persónuvernd.
Mörkin sinnir málum þar sem einstaklingar telja að gengið hafi verið á rétt þeirra, hvort sem það birtist í kvörtun til Persónuverndar, leiðréttingarbeiðnum eða dómsmálum.
Áhersla er lögð á að ráðgjöfin sé hagnýt og að fyrirtæki geti unnið með persónuupplýsingar á þann hátt sem þjónar starfsemi þeirra án þess að ganga á réttindi einstaklinga.
Markmiðið er að skapa skýra umgjörð um vinnslu persónuupplýsinga, þannig að bæði rekstrarsjónarmið og lögbundnar kröfur séu virtar samhliða.
Viðfangsefni geta meðal annars varðað
- Innleiðing persónuverndarlaga
- Mat á áhrifum vinnslu
- Viðbrögð við öryggisbrestum
- Vinnslusamningar
- Mál fyrir Persónuvernd


