Fara í meginmál

Starfssvið

Mannréttindi

Umhverfismynd fyrir starfssvið: Mannréttindi

Mannréttindamál snerta grunngildi réttarríkisins og kalla á yfirvegun, þekkingu og þrautseigju. Mörkin sinnir málum þar sem reynir á stjórnarskrá, mannréttindasáttmála Evrópu og samspil við innlenda réttarframkvæmd.

Sérhæfð þjónusta og reynsla

Ráðgjöfin getur meðal annars varðað tjáningarfrelsi, friðhelgi einkalífs, jafnræði fyrir lögum, réttláta málsmeðferð og atriði sem snerta réttindi þeirra sem sviptir hafa verið frelsi.

Mörkin sinnir hagsmunagæslu á öllum stigum, frá samskiptum við stjórnvöld og kvörtunum til umboðsmanns Alþingis eða Persónuverndar til málflutnings fyrir innlendum dómstólum.

Áhersla er lögð á að málin séu undirbúin með skipulegum hætti, þar sem byggt er á þróun dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu og íslenskum dómafordæmum.

Markmiðið er að viðskiptavinir hafi skýra yfirsýn yfir réttarstöðu sína og raunhæfar leiðir til lausnar, hvort sem mál enda með samtali við stjórnvöld eða ítarlegum málflutningi.

Viðfangsefni geta meðal annars varðað

  • Tjáningarfrelsi og friðhelgi einkalífs
  • Réttlát málsmeðferð
  • Réttindi þeirra sem sviptir hafa verið frelsi
  • Samskipti við umboðsmann Alþingis
  • Mál fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu