Starfssvið
Evrópuréttur

EES-samningurinn og afleidd löggjöf Evrópusambandsins hafa víðtæk áhrif á íslenskan rétt. Mörkin veitir fyrirtækjum, opinberum aðilum og einstaklingum ráðgjöf um réttindi og skyldur sem af honum leiða.
Sérhæfð þjónusta og reynsla

Ráðgjöfin getur meðal annars varðað fjórfrelsið, ríkisaðstoð, opinber innkaup, samkeppnislög, neytendavernd og samspil íslenskrar löggjafar við gerðir sem teknar hafa verið upp í EES-samninginn.
Mörkin sinnir ráðgjöf á undirbúningsstigi nýrra verkefna og fjárfestinga, þar sem nauðsynlegt er að meta áhrif EES-reglna með skýrum hætti til að draga úr áhættu í framhaldinu.
Einnig er sinnt málflutningi fyrir innlendum dómstólum þegar reynir á túlkun EES-reglna, sem og kvörtunum til Eftirlitsstofnunar EFTA eða ráðgjöf vegna mála sem ratað hafa til EFTA-dómstólsins.
Markmiðið er að skapa skýra yfirsýn um réttarstöðu og að ráðgjöfin nýtist sem hagnýtt tæki við ákvarðanatöku, hvort sem um er að ræða viðskiptaákvarðanir eða lögfræðilegan ágreining.
Viðfangsefni geta meðal annars varðað
- Fjórfrelsið og innri markaðurinn
- Ríkisaðstoð og opinber innkaup
- Innleiðing EES-gerða
- Kvartanir til Eftirlitsstofnunar EFTA
- Málflutningur þar sem reynir á EES-rétt



