Fara í meginmál

Starfssvið

Greiðslustöðvun, nauðasamningar, gjaldþrot

Umhverfismynd fyrir starfssvið: Greiðslustöðvun, nauðasamningar, gjaldþrot

Þegar fjárhagsleg vandræði koma upp skiptir miklu máli að bregðast skjótt og af yfirvegun við. Mörkin sinnir ráðgjöf og hagsmunagæslu á öllum stigum, hvort sem um er að ræða greiðslustöðvun, nauðasamning eða gjaldþrotaskipti.

Sérhæfð þjónusta og reynsla

Ráðgjöfin getur meðal annars varðað mat á fjárhagsstöðu, undirbúning umsóknar um greiðslustöðvun eða nauðasamning, samskipti við kröfuhafa, samningaviðræður um endurskipulagningu skulda og samspil við dómstóla.

Mörkin gætir hagsmuna kröfuhafa við skipti dánarbúa, þrotabússkipti og opinber skipti, og veitir ráðgjöf þegar reynir á forgangsröðun krafna, riftanir og umsýslu eigna.

Á sviði gjaldþrotaréttar er sinnt málflutningi og ráðgjöf sem snertir ábyrgð stjórnenda og endurskoðenda, samningsgerð í tengslum við slit og samspil við fjármálastofnanir.

Markmiðið er að viðskiptavinir fái skýra yfirsýn yfir mögulegar leiðir og afleiðingar þeirra, og að ráðgjöfin styðji við bestu mögulegu lendingu á erfiðum tíma.

Viðfangsefni geta meðal annars varðað

  • Undirbúningur greiðslustöðvunar
  • Nauðasamningar og endurskipulagning
  • Hagsmunagæsla kröfuhafa
  • Skipti þrotabúa
  • Riftanir og forgangskröfur