Fara í meginmál

Starfssvið

Verðbréfamarkaðsréttur

Umhverfismynd fyrir starfssvið: Verðbréfamarkaðsréttur

Verðbréfamarkaður byggir á trausti og gegnsæi. Mörkin veitir útgefendum, fjárfestum og fjármálafyrirtækjum ráðgjöf um reglur um verðbréfaviðskipti, upplýsingaskyldu og samspil við Kauphöllina og Seðlabanka Íslands.

Sérhæfð þjónusta og reynsla

Ráðgjöfin getur meðal annars varðað útgáfu hlutabréfa, skuldabréfa og afleiðna, töku verðbréfa til viðskipta, lýsingar, samspil við markaðssvika- og innherjareglur og innra eftirlit útgefenda.

Mörkin sinnir samskiptum við eftirlitsaðila, gerð flöggunartilkynninga, yfirtökutilboðum og málum sem snerta upplýsingaskyldu skráðra félaga, sem og ráðgjöf í tengslum við útboð og kauphallarskráningar.

Þegar reynir á ágreining er sinnt málflutningi um túlkun reglna, ábyrgð útgefenda og ráðgjafa og samspil við erlendar reglur sem hafa verið innleiddar á grundvelli EES-samningsins.

Markmiðið er að ráðgjöfin styðji við ábyrgar ákvarðanir á markaði og hjálpi viðskiptavinum að uppfylla kröfur með skilvirkum og fyrirsjáanlegum hætti.

Viðfangsefni geta meðal annars varðað

  • Útgáfa verðbréfa og lýsingar
  • Innherjareglur og markaðssvik
  • Yfirtökutilboð
  • Upplýsingaskylda skráðra félaga
  • Samskipti við eftirlitsaðila