Fara í meginmál

Starfssvið

Flutninga- og sjóréttur

Umhverfismynd fyrir starfssvið: Flutninga- og sjóréttur

Flutninga- og sjóréttur er sérhæft réttarsvið sem snertir bæði daglega flutninga og stærri verkefni eins og smíði og kaup á skipum. Mörkin veitir útgerðum, flutningsaðilum og viðskiptavinum þeirra heildstæða ráðgjöf.

Sérhæfð þjónusta og reynsla

Ráðgjöfin getur meðal annars varðað gerð flutningssamninga, farmskírteini, leigusamninga um skip, kaup og sölu skipa, fjármögnun og samspil við hafnarþjónustu og tollafgreiðslu.

Mörkin sinnir málum sem rísa þegar farmur skemmist, tafir verða eða ágreiningur kemur upp um ábyrgð milli sendanda, flutningsaðila og viðtakanda. Áhersla er lögð á skýra greiningu á ábyrgð og bótarétti.

Á sviði sjóréttar er sinnt málum sem snerta árekstra, björgun, mengun og samspil við tryggingafélög, sem og deilumálum í tengslum við áhafnarmál og útgerðarrekstur.

Markmiðið er að veita ráðgjöf sem styður við ákvarðanir í greininni, hvort sem um er að ræða stærri fjárfestingar eða ágreining sem þarf að leysa skjótt og af festu.

Viðfangsefni geta meðal annars varðað

  • Flutningssamningar og farmskírteini
  • Kaup, sala og fjármögnun skipa
  • Tjón á farmi og bótakröfur
  • Björgun og árekstrar
  • Samspil við tryggingafélög